Collection: Laskasett gull

 Prjónamerkjasett með 10 merkjum í gylltum lit 

Þessi sett voru hugsuð út frá því að hafa allt sem þyrfti þegar prjónað væri laska á lokaða peysu, þ.e.a.s. 1 upphafsmerki, 8 merki fyrir framan og aftan laskalykkju og svo 1 framvindumerki til þess að fylgjast með lengd á bol eða til þess að krækja í flíkina til þess að minna á breytingar í uppskrift. 

Að sjálfsögðu nýtast þessi prjónamerki í öll verkefni eins og hver önnur, og alls ekki alltaf sem þarf að nýta þau öll. Settin koma á opnanlegum hring sem heldur utan um merkin þegar þau eru ekki í notkun. 

þessi sett kýs ég að kalla laskasett - ég vona að þér þyki jafn gaman að nota þau og mér fannst gaman að setja þau saman. 

 

Öll merkin henta fyrir prjónastærð 2-9mm nema annað sé tekið fram